Fyrsta nóttin hér var köld, þó hlýtt hafi verið úti, ég svaf í síðum náttbuxum gyrtar ofan í hlýja sokka og svaf í bol og flíspeysu og með hita á ofninum og var þá sæmilega hlýtt...en um leið og það fór að birta úti um morguninn hlýnaði inni.
Núna er ég að flokka reikininga fyrir karlinn og mikið einstaklega er rafmagn og hiti dýrt hér, fæ smá móral núna í hvert skipti sem ég kveiki á ljósi. Seinna í dag ætlar strákurinn með mér í göngutúr um bæinn og ég ætla skrifa aftur þá, læt þetta duga í bili.
Ragnheiður
Lesið - frábært - alltaf gott að skrifa um hlutina - hlakka til að fylgjast með þér
ReplyDeletemamma
Gaman að fylgjast með þér Ragnheiður, vertu dugleg að blogga. Góða skemmtun í bæjarferðinni í dag:)
ReplyDelete