Tuesday, 19 January 2010

Dagur nr.2

Annar dagur minn hér í Painswick, strax komin með betri tilfinningu fyrir staðnum en í gær en verð að segja að heimþráin er nú ennþá sterk. Eða, finnst þetta ekki vera heimþrá...bara það að vera ekki heima og vera á nýjum stað, öðruvísi og óþæileg tilfinning. En sem betur fer get ég alltaf talað við mömmu, pabba eða Óskar á msn/skype/sms eða hringt í þau, það gerir þetta einfaldara. 

Fyrsta nóttin hér var köld, þó hlýtt hafi verið úti, ég svaf í síðum náttbuxum gyrtar ofan í hlýja sokka og svaf í bol og flíspeysu og með hita á ofninum og var þá sæmilega hlýtt...en um leið og það fór að birta úti um morguninn hlýnaði inni. 
Núna er ég að flokka reikininga fyrir karlinn og mikið einstaklega er rafmagn og hiti dýrt hér, fæ smá móral núna í hvert skipti sem ég kveiki á ljósi. Seinna í dag ætlar strákurinn með mér í göngutúr um bæinn og ég ætla skrifa aftur þá, læt þetta duga í bili. 

Ragnheiður